Prófíll

  • Nafn: Katrín Axelsdóttir
  • Netfang: katrin.axelsdottir@gmail.com
  • Staður: Kópavogur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fyrri lífs þjálfi/dávaldur og Reiki Master

Auglýsing

Könnun

Verndarar - þekktir eða óþekktir?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Skrifa í gestabók

20.
20. mars 2010 klukkan 20:23
thu segir ad allir geti talad vid sina verndara.
hvernig getur madur komist i samband vid sina eigin verndara, er thad eitthvad sem madur getur unnid i sjalfur. eg hef mikin ahuga a thessum malum og thaetti vaent um ad fa svor vid thessu fra ther.
Med kaerleik og fyrirfram thokk.
Smari
19.
10. febrúar 2010 klukkan 10:57
Takk fyrir allar athugasemdirnar!
Ég hef verið frá í einhvern tíma en mun fljótlega fara að taka við pöntunum aftur.

Sif: Ég veit ekki til þess að þetta sé kennt hér heima, aftur á móti er ég með kennsluréttindi og getur verið að ég stofni til námskeiðs seinna í ár.

Það er alltaf jafn gaman að sjá mismunandi upplifanir fólks á andlegu hliðunum og Varðandi þess sem Hrefna skrivar verð ég bara að biðja hana um að hafa samband við mig ef þetta er óklárt.. Allt sem þú spyrð um er svarað hér á síðunni.

Haldið endilega áfram að lifa óvenjulega í venjulegum heimi!

Ástarkveðjur

Katrín Axelsdóttir
18.
14. janúar 2010 klukkan 23:46
Sæl

ég hef nokkrum sinnum farið í dáleiðslu tíma, og hef góða reynslu af því.
Líka eftir tímana, þá er eins og manni líði einhvernveginn betur.
Ég missit föður minn sl. okt. og var djúpt í sorgarferlinu. Ég hef farið 2 sinnum
í dáleiðslu, og eftir seinni tímann, þá er eins og mér líði eðlilegra þegar ég hugsa
til föður míns, en fer ekki að gráta.
Reyndar er ég búin að vera lesa mikið um spiritisma, og þannig bækur í einhvern tíma,
og líklega er ég að upplifa núna, það sem ég trúi innst inni, að ég er með kærleikann inní
mér, og allt sem ég þarf til að lifa góðu og kærleiksríku lífi.
Ég trúi líka, að við stoppum bara í einhvern tíma hérna á jörðinni, síðan höldum við heim,
og hittum aftur þær sálir sem eru í okkar hóp. En komum líka aftur á jörðina í annan líkama, eða á aðra plánetu þar sem við getum lært meira. Til þess komum við hingað
á jörðina, til að sálin læri meira.
Það er gott að virða líkamann okkar, þar sem hann fer með okkur um allt á jörðinni, sem við þurfum að fara. Sálin dvelur í honum á meðan hún er á jörinni í mannsmynd.
Hugsa vel um líkamann, borða hollt, hreyfa sig, og eiga góð sambönd við vini og fjölskyldu.
Það er engin vondur í raun. Allir eru sálir að læra á jörðinni. Og allir hafa sinn leiðbeinanda, en oft heyrum við ekki , eða treystum ekki því sem okkur er leiðbeint með.
Best að hlusta á fystu viðbrögðin í huganum, eða sálinni, það er það rétta. Muna það.
Margt er hægt að laga í sálartetrinu með dáleiðslu, hjá góðum leiðbeinanda.
Gangi öllum vel sem prófa dáleiðslu, því sú reynsla getur hjálpað.
17.
05. október 2009 klukkan 00:30
Sæl

Veist þú nokkuð hvort hægt sé að læra dáleiðslu einhvernstaðar á Íslandi ?

Með fyrirfram þökk

Sif
16.
21. febrúar 2009 klukkan 00:06
Sæl og blessuð ég verð að segja að það gleður mig að ég er ekki ein hérna um að flnnast ég eiga mörg líf að baki frá því ég var lítið barn og hef ég verið mjög forvitinn um mín fyrri líf mér gengur mis vel að vinna úr þessu lífi og langar mjög mikið að panta tíma hjá þér og vita meira
15.
09. nóvember 2008 klukkan 11:00
Sæl Kerstín var að lesa viðtal við þig í hann og hún,mjög svo fróðlegt og skemmtilegt,
14.
31. október 2008 klukkan 14:07
Sæl Katrín.
Ég er efasemdarmanneskja og sem sálfræðingur finnst mér ansi hæpið að þú teljir þig geta læknað hina ýmsu sálfræðilegu kvilla með reikimeðferð. Ég vildi gjarnan fá svör við nokkrum spurningum.
1) Er menntun þín viðurkennd menntun í svíþjóð?
2) Hvaða rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi þessarar meðferðr og þá við hvaða kvillum?
3) Hefur þú upplifað að lækna einhverja kvilla og hvernig og hvenær metur þú það?
4) Ég skil það sem svo að þú breytir reikimeðferðinni, hefurðu gögn um gagnsemi þess að breyta meðferðinni og er það leyfilegt. Ég á reyndar erfitt með að skilja þessa setningu
"Þar sem reiki er í raun mjög spekingslegt og eiginlega meir eins og trú en aðferð hef ég einungis nýtt mér hana í samræmi og einingu minnar eigin upprunalegu heilun. Ég ber mikla virðingu fyrir reiki en trúi því að mér sé ekki ætlað að festa mig við hana einungis." en ég skil það sem svo að þú hafir breytt meðferðinni.

Kær kveðja,
Hrefna
13.
14. október 2008 klukkan 10:34
Hæ Katrín mín ;)

Ofsa flott síðan þín.

Gangi þér vel með hana :)

Kveðja
Linda
12.
23. ágúst 2008 klukkan 05:57
Hummm ég hef mjög gaman af svona efnum er buinn að fara til miðils einu
sinni og það gekk samt ekki nógu vél en eithvað kom frá honum
En þegar ég var yngri fór ég til spákonu á 12 ári að mig minnir
Og hún sagði ýmistlegt sem mig langar að gera en ég arf að lita til þín
Og sjá hvort þú getur ekki hjálpað mér með öll þessi vandamál sem eru á minni könnu ég reini að panta tima hjá þer sem fyrst
p.s vissi að við áttum mörg líf að handan en ekki svona mörg hélt að það væri svona13-18 en ekki 50+ en eg reini að panta tima sem fyrst
Bara takk kjærlega fyrir siðuna :)
11.
26. júní 2008 klukkan 16:08
Ég hef farið í dáleiðslu hjá henni Katrínu. Þetta var mjög skemmtileg upplifun. Mér fannst eins og ég hafi verið í mesta lagi 30 mín dáleiddur en þetta var í kringum 2 klukkutíma. Ég byrjaði að sjá ýmsa hluti sem hafa hjálpað mér örlítið með það sem ég þarf að vinna úr. Þá sá ég líka hluti sem segja mér svolítið hvernig ég er í dag. þetta er alveg hreinnt ótrúleg upplifun. Eða sú var allavega mín reynsla.
10.
25. júní 2008 klukkan 18:30
Fróðleg síða sem ég rakst inná þegar að ég var að vafra og á ég eftir að fylgjast með henni. Heillandi viðfangsefni dáleiðslan. Gangi þér vel með þetta.

Bestu kveðjur
Bergþóra
9.
14. maí 2008 klukkan 16:00
Hæhæ mér langar að spurja er hægt að losna við hræðslu t.d. við geitunga og randaflugur með dáleiðslu?
og er þetta ekki góð leið til að hætta að reykja?
8.
09. maí 2008 klukkan 20:52
Frábært fram tak! Ég hef alltaf verið mjög áhuga samur um fyrri líf og tengd málefni. Ég úti loka ekki að ég taki kannski smá vegis námskeið í þessu því að ég hef mikinn áhuga á því að finna út hvað er að hrjá mig í dag sem gæti verið út af slæmri reynslu í fyrri lífum.
Hlakka til að kynna mér þetta betur.
Bjarki
7.
02. maí 2008 klukkan 10:58
sælar:) rosaflott síða hjá þér, og æðislegt sem þú ert að gera, ég er einmitt rosaleg efasemdarmanneskja, og þarf sönnun fyrir öllu, þannig að ég væri sko alveg til í að koma og prófa þetta, er einmitt búin að senda þér mail:) allavegana vona bara að ég muni heyra í þér við tækifæri:)
6.
18. apríl 2008 klukkan 13:46
Sælar, frábær síða hjá þér! Rakst á hana svona af tilviljun. Mér finnst alltaf jafn æðislegt að vita að það eru fleiri en ég sem eru að spá í svona merkilegum hlutum :)
Ég hef alltaf verið mjög "næm" en ef einhverri ástæðu hef ég eiginlega lokað á þessa hæfileika mína og ég get ekki almennilega skilið hvers vegna. Getur vel verið að ástæðan leynist í e-h staðar í fortíðinni.. svo það er aldrei að vita hvort ég panti ekki tíma hjá þér einn daginn.
5.
09. apríl 2008 klukkan 00:52
Sælar gegguð síða hjá þér ...ekkert smá spentur yfir þessu sem þú ert að bauka ;) hvernig pantar mar tíma???
4.
07. apríl 2008 klukkan 20:59
Er engin hemja hvað hægt er að titla sig? Fyrri lífs dáleiðari/ráðgjafi.... Rettast er að kalla þig Norn!
Þetta er ótrúleg þvæla og verst er að þú rukkar saklaust fólk fyrir þetta tveggja tíma bull og það 12.000 krónur. Er engin samviska þarna bakvið?

Þetta á að banna!
3.
02. apríl 2008 klukkan 11:05
Mín spurning er þessi t.d ég borða ekki gærnmeti og ávexti gæti dáleiðsla orðið til þess að ég myndi byrja að borða það er hægt að koma því í undirmeðvitundina mína?
2.
26. mars 2008 klukkan 20:32
er einhver lágmarksaldur til að fá að koma til þín? er 14 ára og hef ýmsann áhuga á svona efnum, sálfræði og ýmisskonar dulspeki.
1.
25. mars 2008 klukkan 23:29
Frábær síða hjá þér, ég er mjög mikil áhugamanneskja um svona og langar endilega til þess að láta dáleiða mig og sjá fyrri líf, en geturu sagt mér hvort það er eitthvað verra að fara ef ég er ólétt eða ætti ég að bíða þar til ég er búin að eiga??