Prófíll

  • Nafn: Katrín Axelsdóttir
  • Netfang: katrin.axelsdottir@gmail.com
  • Stađur: Kópavogur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fyrri lífs ţjálfi/dávaldur og Reiki Master

Auglýsing

Könnun

Verndarar - ţekktir eđa óţekktir?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Hversu mörg líf?

05. mars 2008 klukkan 16:14

Ástæðan fyrir könnuninni sem ég setti hér inn um hversu mörg líf fók telur sig hafa lifað er sú að það er oft svo mismetið.

Fólk á oft erfitt með að trúa því að það hafi lifað oftar en 10 sinnum, og auðvitað er það frekar fjarstæðukennt; sérstaklega þar sem við munum oftast ekki eftir okkar fyrri lífum.

En ég vil samt bregða ykkur með því að við höfum flest öll lifað um 50+ líf.

Já, það virðist kanski mikið en oftar en ekki er þetta algjör lágmarkstala!

Mörg líf höfum við lifað stutt þar sem megin tilgangur með lífi okkar var að veita öðrum skilning og lífreynslu, þá oftast sálum sem við þekkjum vel og hjálpum þegar við erum ekki í mansformi.

Önnur líf höfum við lifað sem alls kyns verur, hafa verið til frásagnir fólks þar sem það upplifir sig sem tré í dáleiðslu og segir frá hápúnkti lífsins þar sem svölflokkur flaug yfir..

Einnig hef ég sjálf dáleitt manneskju sem sá sig sem hest í eigu indjána sem féll loks í stríði indverja og nýbúa bandaríkjanna.

Við höfum margt að læra og oft lifum við mörg líf með sama tilgangi, þ.a.e.s til þess að læra sama hlutinn þar sem eitt líf er hvergi nærri því nóg til þess.

Oft vill gleymast hver ástæða lífsins er, hversdagsleikinn getur oft haft þau áhrif á okkur að við festumst í veraldslegum hlutum og gleymum að hinkra við andlegu hliðarnar og hlúa að þeim.

En við lærum þó eitthvað af öllum sem við gerum, öllum sem við hittum og öllu sem "kemur fyrir okkur".

Það er ekkert "al-slæmt"

Ég fæ oft leiðinda athugasemdir s.s. "hvað með börnin í Afríku?"

Fólk á mjög erfitt með að hugsa sér að einhver sál skyldi hafa valið sér þá eymd..

En þá spyr ég; hvort lærir þú meir af einhverju sem er einfalt og kunnugt eða af eymd og volæði?

Hvor heldur þú að þekki betur ást; fræg hollywood stjarna eða barn í Afríku sem á ekkert nema fjölskylduna sína?

Það er ekki hægt að búast við því að allir skilji þessa heimspeki sem ég hef tileinkað mér og lært í gegnum starf mitt í dáleiðslu, en ég vil aftur á mót benda fólki á að allt er ekki alltaf eins og sýnist, við vitum ekki allt og þegar við komumst á hærra stig þá munum við sjá hvað skiptir máli við munum sjá hluti í öðru ljósi en þangað til er mitt besta ráð að halda augum, hug og hjarta opnu og ekki gleyma að það sem skiptir þig mestu máli í dag er ekki það sama og skiptir mestu fyrir náungan!

Ég vona að þetta komi af stað smá pælingum hjá ykkur og eins og ég hef sagt áður er alltaf velkomið að spyrja eða skrifa athugasemdir.

Farið vel með ykkur Brosandi

Katrín

Katrín Axelsdóttir
Dáleiđslan og fyrri líf | 1 athugasemd