Prófíll

  • Nafn: Katrín Axelsdóttir
  • Netfang: katrin.axelsdottir@gmail.com
  • Staður: Kópavogur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fyrri lífs þjálfi/dávaldur og Reiki Master

Auglýsing

Könnun

Verndarar - þekktir eða óþekktir?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Verndarar Okkar

04. nóvember 2008 klukkan 11:00
Það eru ekki allir sem trúa því að það sé einhver með okkur, einhver sem verndar okkur og reynir að leiðbeina okkur.. En aftur á móti eru ekki allir sem trúa á fleira en eitt líf, né aðferðir mínar til að skyggjast inn í þau..
Verndarar eru þrátt fyrir það staðreynd fyrir mér, ég veit að við höfum þá og hef vitað í lengri tíma. Þeirra hlutverk er að vera eins og öxl fyrir okkur að halla okkur að, stór útbreiddur faðmur.
Þegar við ákveðum að lifa á ný ákveðum við einnig hvern við viljum hafa með okkur í för. Þetta eru yfirleitt sálir sem við könnumst vel við og treystum. Þessar sálir eru á svipuðu stigi og við sjálf en eru "í pásu" og geta þessvegna einbeitt sér að því að hjálpa okkur á meðan við göngum um í manslíkamanum.

Yfirleitt höfum við alnokkra verndara, sumir sem koma og fara eftir þörfum, aðrir eru alltaf með okkur og nokkrir eru einhverjir sem bæst hafa í hópinn eftir að við urðum manneskjur.
Þessir sem eru alltaf eru yfirleitt sálir sem við völdum, þó svo ég segi alltaf eru þær samt ekki ALLTAF hjá okkur en eru nálglæt og fylgjast vel með. Hinir sem koma og fara geta verið sálir sem við könnumst við og vilja athuga með okkur af og til.
Þeir sem bætast við seinna geta svo verið látnir ættingjar sem eru til staðar fyrir okkur sem mannverur, auðveldar okkur að þekkja sálina ef við sjáum hana í því formi sem hún var sem manneskja.

Það geta allir talað við verndara sína, það þarf bara að vilja það og treysta því að það sem maður heyri, nú eða sér, sé í raun frá þeim komið. Við sem mannverur höfum mikla efasemd í okkur sem getur aftrað okkur í andlegum samskiptum. Þessi efasemd er í raun til þess að halda okkur heilum á geði en ekki bara fljóta inn í aðra heima.. Mjög gott að hafa en nauðsýnilegt að kunna að stjórna.

Ég hef gert svolítið af því undanfarið að greiða leiðina að verndurum viðskiptavina minna, þ.e ég bý til svæði fyrir einstaklinginn að hitta þá og seinna meir ef viðkomandi finnur þörf á því að hitta þá aftur hefur hann alltaf þennan stað til afnota og veit þá hvernig á að haga umhverfinu.

Ég hef kynnst því að verndarar okkar geta hjálpað okkur með ýmislegt sem viðkemur núverandi lífi okkar og sálarlífi. Oft geta þeir leiðbeint okkur, sagt okkur frá leiðunum sem við völdum við upphaf lífsins og komið okkur aftur á rétta braut. Þeir hafa líka getað hjálpað með andlega líðan, gefið okkur svör við spurningum sem liggja okkur á hjarta og almennt bara verið til staðar. Það er fátt betra en að vita að maður er ekki einn!

Mig langar líka að minnast á við ykkur að ef þið spyrjið spurningar undir "spjallið" mun ég svara þeim undir "spurt og svarað".

Vonandi líður ykkur öllum sem best!

Katrín Axelsdóttir 
Katrín Axelsdóttir
Engin athugasemd

Tilgangur Lífsins...

09. október 2008 klukkan 15:53
Er tilgangur með lífi okkar? Er hann sá sami fyrir alla?
Þurfum við tilgang með lífi okkar...... Nánar

Komin aftur úr fæðingarorlofi

28. júlí 2008 klukkan 15:42
Ég vil byrja á að biðjast afsökunar á því hversu ódugleg ég hef verið við að svara tölvupósti undanfarið, en þessi tími hefur verið virkilega einstakur og hef ég ekki haft tíma til að sinna neinu öðru en nýjasta fjölskyldumeðlim og heimilinu.Hlæjandi

Ég sé að það hafa margið verið að skoða síðuna hjá mér og er ég alsæl með það, það virðist vera að almenningu sé alltaf að verða meir og meir vakandi fyrir andlegum málefnum og er það auðvitað frábært!

Ég mun á næstu dögum fara í það að svara þeim fjölmörgu bréfum sem ég fékk, hef alls ekki gleymt ykkur en hef ekki haft tíma til að setja mig inn í aðstæður ykkar og koma með svör.
Ég mun svo fara að taka tímapantanir aftur núna á næstunni en hef orðið ágætis biðlista eins og er..
Ef það er áhugi fyrir tíma má endilega senda mér mail og ég skal skrifa ykkur niður á listann Hlæjandi

Ég mun einnig koma með nýjar fæsrlur á næstu dögum, vil bara þakka ykkur fyrir að koma við hér reglulega og mig hlakkar til að heyra meir frá ykkur!!

Bestu Kveðjur

Katrín
Katrín Axelsdóttir
1 athugasemd

Hversu mörg líf?

05. mars 2008 klukkan 16:14

Ástæðan fyrir könnuninni sem ég setti hér inn um hversu mörg líf fók telur sig hafa lifað er sú að það er oft svo mismetið.

Fólk á oft erfitt með að trúa því að það hafi lifað oftar en 10 sinnum, og auðvitað er það frekar fjarstæðukennt; sérstaklega þar sem við munum oftast ekki eftir okkar fyrri lífum.

En ég vil samt bregða ykkur með því að við höfum flest öll lifað um 50+ líf.

Já, það virðist kanski mikið en oftar en ekki er þetta algjör lágmarkstala!

Mörg líf höfum við lifað stutt þar sem megin tilgangur með lífi okkar var að veita öðrum skilning og lífreynslu, þá oftast sálum sem við þekkjum vel og hjálpum þegar við erum ekki í mansformi.

Önnur líf höfum við lifað sem alls kyns verur, hafa verið til frásagnir fólks þar sem það upplifir sig sem tré í dáleiðslu og segir frá hápúnkti lífsins þar sem svölflokkur flaug yfir..

Einnig hef ég sjálf dáleitt manneskju sem sá sig sem hest í eigu indjána sem féll loks í stríði indverja og nýbúa bandaríkjanna.

Við höfum margt að læra og oft lifum við mörg líf með sama tilgangi, þ.a.e.s til þess að læra sama hlutinn þar sem eitt líf er hvergi nærri því nóg til þess.

Oft vill gleymast hver ástæða lífsins er, hversdagsleikinn getur oft haft þau áhrif á okkur að við festumst í veraldslegum hlutum og gleymum að hinkra við andlegu hliðarnar og hlúa að þeim.

En við lærum þó eitthvað af öllum sem við gerum, öllum sem við hittum og öllu sem "kemur fyrir okkur".

Það er ekkert "al-slæmt"

Ég fæ oft leiðinda athugasemdir s.s. "hvað með börnin í Afríku?"

Fólk á mjög erfitt með að hugsa sér að einhver sál skyldi hafa valið sér þá eymd..

En þá spyr ég; hvort lærir þú meir af einhverju sem er einfalt og kunnugt eða af eymd og volæði?

Hvor heldur þú að þekki betur ást; fræg hollywood stjarna eða barn í Afríku sem á ekkert nema fjölskylduna sína?

Það er ekki hægt að búast við því að allir skilji þessa heimspeki sem ég hef tileinkað mér og lært í gegnum starf mitt í dáleiðslu, en ég vil aftur á mót benda fólki á að allt er ekki alltaf eins og sýnist, við vitum ekki allt og þegar við komumst á hærra stig þá munum við sjá hvað skiptir máli við munum sjá hluti í öðru ljósi en þangað til er mitt besta ráð að halda augum, hug og hjarta opnu og ekki gleyma að það sem skiptir þig mestu máli í dag er ekki það sama og skiptir mestu fyrir náungan!

Ég vona að þetta komi af stað smá pælingum hjá ykkur og eins og ég hef sagt áður er alltaf velkomið að spyrja eða skrifa athugasemdir.

Farið vel með ykkur Brosandi

Katrín

Katrín Axelsdóttir
Dáleiðslan og fyrri líf | 1 athugasemd

Draumar um fyrri líf.

08. nóvember 2007 klukkan 14:32
Fyrsta upplifunin mín af fyrri lífum var einmitt í draumi.
Ég man þann draum eins og mig hafi dreymt hann í kaffipásunni í morgun Hissa

Draumurinn sýndi mér í raun aðeins mikilvægustu augnablik þessa lífs, ég sá mig sem barn, upplifði heimilsaðstæður. Sá fólk sem áttu eftir að skipta mér miklu máli í því lífi og upplifði svo brot úr næstkomandi árum fram að dauða mínum.
Það sem þó einkenndi þennan draum var tilfinningarflæðið sem ég upplifði, bæði á meðan mig dreymdi en líka í margar vikur eftirá.
Þegar ég vaknaði upplifði ég mikinn söknuð og sorg yfir þeim sem ég hefði tapað og aðstæðum sem ég hafði upplifað. 
Í margar vikur upplifði ég þennan söknuð og þetta varð í raun til þess að ég ákvað að læra dáleiðslu, til þess að geta hjálpað öðrum en líka til þess að geta sjálf skilið þetta betur og jafnvel unnið úr þessum tilfiningum sem höfðu fest sig við mig.

Draumurinn var semsagt bara brot, en eftir hann vissi ég nákvæmlega hvernig allt þetta líf hefði verið. Ég gat sem sagt "munað" í eyðurnar. Þetta var í fyrsta skipti sem mig hafði dreymt þannig draum...
Oft getur maður kanski getið sig í eyður eða jafnvel spunnið sögu í kringum þá, en þetta vissi ég bara... Þurfti ekkert að hugsa eða pæla heldur var þetta bara til staðar og stundum var það jafnvel erfitt að muna hvað mig hefði dreymt og hvað ég hreinlega bara vissi Brosandi

Þessi draumur um þetta tiltekna líf gerði mér kleift að skilja viss hegðunarmynstur mín í þessu lífi, afhverju ég bregst svona og hinsegin við mismunandi hlutum og aðstæðum.
Ég er enn ekki viss um ástæðu þess að ég upplifði akkurat þetta líf á þessum tímapúnkti, en hef fulla trú á því að það hafi ekki verið tilviljun.

Margir hafa dreymt fyrri líf sín án þess að gera sér grein fyrir því, langflestir muna þó eftir tilfinningunum sem fylgdu.
Því miður höfum við ávallt þessa litlu rödd í hausnum sem segir okkur hversu miklir kjánar við séum að trúa svona hlutum...
Þessi rödd er reyndar mikilvæg geðheilsu okkar en samt sem áður heftandi þegar það kemur að því að kanna okkar andlegu hliðar.
Þessvegna vil ég minna á að ef þú heldur að þig hafi dreymt um fyrri líf, þá er það satt. Það er aðeins ein manneskja sem getur sagt þér til eða frá um sanngildi þess....
Og það ert þú sjálf/ur!!
Hættu að efast um sjálfa þig og leyfðu þér að trúa!

Ég vil líka minna á að ykkur er velkomið að senda mér spurningar.


Kv

Katrín
Katrín Axelsdóttir
3 athugasemdir

Fyrri líf og áhrif þeirra á núverandi líf.

12. júlí 2007 klukkan 17:15
Sem sálir erum við frekar ósnertanlegar fyrir utanaðkomandi hrylling, en um leið og við tökum okkur mansform er sagan önnur.
Þegar við lifum og upplifum, söfnum við reynslu og þekkingu. Við eyðum lífi eftir lífi í það að afla okkur sem mesta kunnáttu og skilning til þess að geta haldið áfram okkar för, hvert sem hún svo leiðir okkur á endanum..
En, á þessari leið eigum við það til að lenda í hinum ýmsu "ævintýrum" sem eiga kanski ekkert of vel við okkur. Hlutir sem hafa gert okkur sorgmædd, reið, örvæntingafull og má lengi telja.
En ef reynsla okkar er slæm og við fáum ekki að vinna úr henni í því lífi, getur hún haldið sér fast sem allskyns kvillar í fleiri lífum eftir það.
Sem dæmi
Kona lifir í fátækt, hún eignast barn með eiginmanni sínum sem er sjómaður.
Einn túrinn snýr hann ekki aftur, konan svelltir og barnið líka. (aðeins ýkt saga, en þið skiljið hugmyndina)
Nú þegar konan deyr veit hún ekkert um manninn sinn, í hennar huga var það henni að kenna að barnið svellti (þar sem hún er jú móðirin) þannig að í næsta lífi mun þessi kona kanski þjást af mikilli hræðlsu varðandi mat eða skort þar á, hún mun sennilega vera ofverndandi gagnvart börnum sínum. Hún mun sennilega líka vera mjög angistarfull þegar maður hennar fer að heiman, mun halda að hann komi ekki aftur og þvíumlíkt.
Þið skiljið að þegar manneskjan veit ekki bakgrunn sinn úr öðrum lífum getur þessi hegðun orðið mjög áreynandi.
Þegar þessi umrædda færi svo í dáleiðslu og fengi að sjá og upplifa þetta aftur, fyrirgefa sjálfri sér og aðstæðum, myndi hún þá skilja hversvegna henni líður svona innanborðs og geta lært að sleppa takinu á afleiðingum fyrra lífs í þessu lífi!  Þessvegna yrði dáleislan til þess að hún yrði kvitt við þessa hegðun og hugsunarhátt.

Þegar við upplifum okkar fyrri líf getur það sem sagt haft beina betrun í för með sér eins og fyrra dæmi segir um. En einnig hjálpar þessi upplifun okkur að sjá hversdagslegu hlutina í öðru ljósi, við skiljum að okkar tilvera, tilvera annara og hlutirnir sem við höfum áhyggjur af eru bara hluti af heildinni... Restin á eftir að koma í ljós.

Margir geta sagt; Nú ef einhver segir okkur bara að við höfum lifað áður og munum lifa aftur, er það ekki nóg til þess að skapa þessar breytingar sem um ræðir?"
Nei, alls ekki! Eigin upplifun er það eina sem getur sannfært fólk um sanngildi þessara staðreyndar!
Ég viðurkenni það fúslega að ég sjálf trúði mátulega á þetta áður en ég upplifði það sjálf.
Þegar maður upplifir svona sterkar tilfinningar er erfitt að vera í afneitun!

Með dáleiðslu getur maður einnig séð og lært af mistökum sem maður hefur gert í gegnum tíðina, mistök sem þurfa ekkert endilega að endurtaka sig en vegna sjónarhóli okkar gera það kanski samt.

Það segir sig í raun sjálft, ef þú vissir hvað þú hefðir veið að gera í fyrri lífum, vitað afleiðingu vala þinna, myndir þú ekki breyta því sem væri slæmt og halda í það sem var gott í þessu lífi??

Það sem er ótrúlegast af áhrifum fyrri lífa á núverandi eru alls kyns likamlegir sjúkdómar sem hafa horfið.
Til eru dæmi um fólk sem hefur gert upp sín fyrri líf sem hafa verið að orsaka ofnæmi, gigt, exem, æxli (!), bakverkir og migreni svo eitthvað sé nefnt. Þó ber að taka fram að þetta er ekki algengt og fer algjörlega eftir einstakling!

Ég vona að þið sem hafið spurningar sendi mér þær svo þetta verði ítarlegra ef þess er þörf Brosandi
Katrín Axelsdóttir
1 athugasemd